Innritun vorönn 2025
Byrjar: 01/11/2024
Endar: 30/11/2024
Borgarholtsskóli býður upp á fjölbreytt nám, bóknám, iðn- og starfsnám og listnám.
Spurningar og svör um Borgó og námið þar.
Dagskóli
Innritun nemenda á vorönn 2025 fer fram dagana 1.-30. nóvember 2024.
Innritun fer fram á vef Menntamálastofnunar.
Nám í boði
- Íþróttaakademía *
- Bíltæknibrautir – bifreiðasmíði, bifvélavirkjun, bílamálun
- Bóknám – félags- og hugvísindabraut, heilsu- og lífsstílsbraut, náttúrufræðibraut, viðskipta- og frumkvöðlabraut
- Framhaldsskólabraut
- Listnám – grafísk hönnun, kvikmyndagerð, leiklist
- Málm- og véltæknibrautir – blikksmíði, rennismíði, stálsmíði, vélvirkjun, pípulagnir
*Nemendur, sem óska eftir að stunda nám í íþróttaakademíu, sækja um skólavist rafrænt eins og aðrir. Því til viðbótar þurfa þeir að sækja um í íþróttaakademíu á sérstöku eyðublaði sem þarf að berast í síðasta lagi 30. nóvember 2024.
Inntökuskilyrði
Innritunargjöld
Nám með vinnu (dreifnám)
Boðið er upp á dreifnám á félagsvirkni- og uppeldissviði og málm- og véltæknibrautum. Það nám er hugsað fyrir þá sem eiga þess ekki kost að stunda hefðbundið nám í dagskóla og er því hægt samhliða námi í dreifnámi að stunda vinnu.
Félagsvirkni- og uppeldissvið
Búið er að opna fyrir umsóknir um nám á félagsvirkni- og uppeldissviði fyrir vorönn 2025.
Sótt er um námið á rafrænu umsóknareyðublaði.
Umsóknarfrestur er til 10. desember 2024.
Nánari upplýsingar gefur Marín Björk Jónasdóttir, sviðsstjóri, marin.jonasdottir@borgo.is
Málm- og véltæknisvið
Innritun fer fram í gegnum umsóknarvef Innu.
Umsóknarfrestur er til 30. nóvember 2024.
Nánari upplýsingar veitir Haraldur Gylfason deildarstjóri, haraldur.gylfason@borgo.is