Líf í borgarholtsskóla

Málm- og véltæknibrautir

Málm- og véltæknibrautirnar eru fjórar, blikksmíðirennismíðistálsmíði, og  vélvirkjun auk þess sem pípulagnir eru hýstar undir hatti sviðsins. Námið í skólanum tekur fjórar til sex annir og að lokinni starfsþjálfun taka nemendur sveinspróf. Námið er á þriðja hæfniþrepi.

Mögulegt er að ljúka námi á öllum iðn- og starfsnámsbrautum með stúdentsprófi. Er það sett upp við hæfi hvers og eins í samráði við náms- og starfsráðgjafa skólans og sviðsstjóra. Stúdentspróf er að lágmarki 200 einingar og lýkur á þriðja hæfniþrepi.

Óski nemandi af málm- og véltæknibrautum eftir því að stunda nám í íþróttaakademíu samhliða sinni braut, er sótt um það í samráði við sviðsstjóra iðn- og starfsnáms og verkefnisstjóra íþróttaakademíu. Einingar eru að mestu viðbót við einingafjölda viðkomandi brautar. Hins vegar geta þær nýst í stað íþróttaeininga, í frjálst val eða sem valeiningar í viðbótarnámi til stúdentsprófs eftir iðn- og starfsnám.

Nám á málm- og véltæknibrautum er hægt að stunda í kvöldskóla. Upplýsingar um innritun.

Athugið að lotukerfi iðnnáms skiptist í gular lotur og grænar lotur og raðast þær ýmist fyrir eða eftir hádegi. Á myndinni hér fyrir neðan er hægt að sjá hvernig þær raðast.

Græn lotutafla málm- og véltæknibrauta haustönn 2024

Gul lotutafla málm- og véltæknibrauta haustönn 2024

Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um málm- og véltæknibrautir í Borgarholtsskóla veitir Marín Björk Jónasdóttir, sviðsstjóri iðn- og starfsnáms.

 

Uppfært: 19/08/2024

Sjá fréttir um Málm- og véltæknibrautir