Viðskipta- og frumkvöðlabraut
Á viðskipta- og frumkvöðlabraut fara saman haldgóð almenn menntun og áhersla á færni nemenda til að takast á við krefjandi háskólanám. Námið er skilgreint á þriðja hæfniþrepi og lýkur með stúdentsprófi. Á brautinni öðlast nemendur innsýn í heim verslunar og viðskipta og hentar námið því vel þeim sem hyggjast leggja stund á háskólanám á þeim sviðum. Áhersla er lögð á færni í stærðfræði og hagnýtingu hennar auk þess sem nemendur kynnast grunnþáttum í fjármálum, forritun, markaðsfræði og upplýsingatækni.
Nýsköpunar- og frumkvöðlafræði eru rauður þráður í náminu á brautinni. Í lokaverkefni nemenda hljóta þeir þjálfun í öllum þáttum nýsköpunar frá hugmyndavinnu og gerð viðskiptaáætlana til markaðssetningar og eftirfylgni.
Nemendur á viðskipta- og frumkvöðlabraut sem eru á afreksíþróttabraut fara eftir brautarlýsingu á afreksíþróttasviði.
Grunnur (105 einingar)
* Í stað ENS3A05 má taka aðra enskuáfanga á þriðja þrepi: ENS3B05, ENS3C05, ENS3D05, ENS3E05.
** Nemendur geta valið milli eftirfarandi áfanga eftir að þeir hafa lokið LÍL1A01 og LÍL1B01: RÆK1A01 – ræktin, JÓG1A01 – jóga, KÖR1A01 – körfubolti, FÓT1A01 – fótbolti og ÚTI1A01 – útivist. Velja má hvern þessara áfanga oftar en einu sinni og velja má fleiri en einn áfanga á önn.
Kjarni viðskipta- og frumkvöðlabrautar (35 einingar)
Bundið pakkaval (20 einingar)
Nemendur geta valið hvenær áfangar af kjörsviðum eru teknir.
Kjörsvið allra brauta (5 einingar)
Kjörsvið viðskipta- og frumkvöðlabrautar (25 einingar)
Frjálst val 10 einingar
Uppfært: 12/06/2024