Líf í borgarholtsskóla

02/01/2025 | Ritstjórn

Upphaf vorannar 2025

Kennsla á vorönn 2025 hefst 6. janúar samkvæmt stundatöflu. Námsgagnalista má finna á Innu.

Töflubreytingar hefjast 3. janúar. Aðrir nemendur en útskriftarefni senda inn beiðnir um töflubreytingar rafrænt í gegnum Innu og verða þær afgreiddar svo fljótt sem auðið verður. Leiðbeiningar um rafrænar töflubreytingar.

Útskriftarefni (þeir nemendur sem eiga um 35 einingar eða minna eftir af sinni braut) eru hvött til að hafa samband við sinn sviðsstjóra, fóstru mætingar og umsjónar eða áfangastjóra til að tryggja að allir nauðsynlegir áfangar til útskriftar séu í töflu. Þetta góða fólk verður til taks eftir kl. 10.00 föstudaginn 3. janúar og hafa útskriftarefni forgang í töflubreytingar þann dag.

Hægt er að fylgjast með lífinu í skólanum á instagramsíðum skólans og nemendafélagsins .

Spurningar og svör varðandi skólann.